Tónlist

Vekja athygli vestra

Lög af nýjustu plötu JJ Soul Band, Bright Lights, hafa hlotið mikla athygli að undanförnu.
Lög af nýjustu plötu JJ Soul Band, Bright Lights, hafa hlotið mikla athygli að undanförnu.

Lagið Really Wild af nýjustu plötu JJ Soul Band, Bright Lights, var á dögunum tilnefnt til Hollywood Music-verðlaunanna. Lagið náði þó ekki að bera sigur úr býtum þegar verðlaunin voru afhent í síðasta mánuði.

Áður hafði lagið Getting Colder By the Year af sömu plötu hlotið tilnefningu til Los Angeles Music-verðlaunanna fyrir ári síðan. Lagið That Kinda Man með JJ Soul Band komst jafnframt í úrslit í 100% Music Songwriting-keppninni fyrr á árinu.

Í þeirri keppni hlaut einnig lag Ingva Þórs Kormákssonar úr JJ Soul Band og Friðriks Erlingssonar, Tonight My Love, fyrstu verðlaun í funk/latin/reggae/world-flokki og líka þriðju verðlaun í allri keppninni óháð tegund tónlistar. Það er Guðrún Gunnars sem syngur enska útgáfu lagsins en Eivör Pálsdóttir söng íslensku útgáfuna í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2003.

Meðlimir JJ Soul Band eru, auk Ingva Þórs, breski söngvarinn og lagahöfundurinn JJ Soul, Eðvarð Lárusson gítarleikari, Stefán Ingólfsson sem leikur á bassa, trommuleikarinn Steingrímur Óli Sigurðarson og Agnar Már Magnússon á hljómborð.- fb








Fleiri fréttir

Sjá meira


×