Lífið

Andri Snær biður Verzlinga afsökunar - heldur fyrirlestur í sáttarskyni

Hafsteinn Gunanr Hauksson forseti nemendafélags Verzlunarskólans.
Hafsteinn Gunanr Hauksson forseti nemendafélags Verzlunarskólans.

Rithöfundurinn Andri Snær Magnason hringdi í formann nemendafélags Verzlunarskóla Íslands og baðst afsökunar á ummælum sem hann lét falla í Silfri Egils fyrir skömmu. Þar sagði Andri að núverandi efnahagsþrengingar fælu í sér fall Verzló. Rithöfundurinn mætir á sal skólans í hádeginu og heldur „kreppufyrirlestur".

Hafsteinn Gunnar Hauksson forseti nemendafélagsins segir að Andri Snær hafi hringt í sig tveimur klukkustundum eftir að viðtal birtist við sig á Vísi. Í viðtalinu gagnrýndi Hafsteinn Andra og sagði m.a að rithöfundurinn væri vanur að tala kjarkinn í fólk og vera jákvæður. Með umræddum ummælum sínum væri hann hinsvegar að tala ástandið niður þegar hann boðaði fall Verzló.

„Hann sagði mér, reyndar líkt og ég hélt allan tímann, að þetta hefði komið öðruvísi út en hann hafi ætlað. Hann bauðst síðan til þess að halda fyrirlestur í sáttarskyni og ég þáði það að sjálfsögðu," segir Hafsteinn en hann bauð Andra að koma og kynna sér skólann í umræddu viðtali.

Í viðtali við Egil Helgason sagði Andri Snær að hin svokallaða krúttkynslóð hefði ekki fallið með falli bankanna, heldur fremur Group-kynslóðin.

„Þetta er fall SUS, Heimdallar, Verzló og viðskiptaháskólanna. Það er svo stór krítískur massi sem er að hrynja núna," sagði Andri og bætti við að undanfarin ár hefðu heilu kynslóðirnar verið framleiddar og látnar læra það sama og tekið síðan próf.

Rithöfundurinn mun mæti í Verzlunarskólann í hádeginu í dag og tala við Verzlinga.






Tengdar fréttir

Ósáttur við ummæli Andra Snæs um fall Verzló

Hafsteinn Gunnar Hauksson, formaður Nemendafélags Verzló, er ósáttur við ummæli Andra Snæs Magnasonar rithöfundar um að núverandi efnahagsþrengingar feli í sér fall Verzló.

Krúttkynslóðin lifir en Groupkynslóðin féll

Rithöfundurinn Andri Snær Magnason var gestur í Silfri Egils á Rúv í dag. Þar sagði hann m.a að krúttkynslóðin hefði ekki fallið þar sem hún hefði ekki tekið lánin heldur notað og nýtt gamla hluti. Hann sagði hinsvegar að Groupkynslóðin hefði beðið skipbrot og að á næstu dögum og vikum þyrfu nokkrir að segja af sér, biðjast afsökunar og sýna auðmýkt. Eftir það væri hægt að byrja að byggja upp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.