„Ísland bak við gufubaðið!“ – Finnar formæla Atli Steinn Guðmundsson skrifar 3. nóvember 2008 11:24 Ætli gufubaðið verði ekki eitthvað í líkingu við þetta þegar Íslendingar skella sér í gufuna með finnsku frændþjóðinni? MYND/Bronson.fi
Hér á eftir fylgja athugasemdir lesenda finnska vefmiðilsins Taloussanomat.fi um lán til handa Íslendingum. Umræða um hugsanlega lánveitingu komst á skrið eftir fund norrænu forsætisráðherrana í Finnlandi í síðustu viku. Óhætt er að segja að finnskir vasar séu í dýpri kantinum í ár. Athygli er þó vakin á að einn álitsgjafanna telur óhætt að lána Íslandi. Satu Rämö þýddi góðfúslega úr finnsku yfir á ensku fyrir Vísi. Vísir kynnir - Finnska fárviðrið: „Íslendingar hafa þegar fengið lán upp á fleiri milljarða evra, hvað ætla þeir að gera við meira? Ég samþykki þetta ef við notum þá peninga, sem Finnland hefur lagt til hliðar fyrir þróunaraðstoð, en alls ekki annars. Fimm milljarðar evra eru 16.000 evrur á hvern einasta Íslending. Varla þurfa þeir allt það fé fyrir brauði og nógan hafa þeir fiskinn í sjónum." „Staðan árið 2010: Stærstu þiggjendur finnskrar þróunaraðstoðar: Ísland og Tansanía." „Hafi ég skilið þetta rétt eru Íslendingar að biðja um lán en ekki styrk. Ef við lánum þeim peninga fáum við vexti jafnvel þótt þeir yrðu sennilega engir okurvextir milli okkar hér í Skandinavíu. Þessi hörðu viðbrögð koma mér á óvart. Þegar við lentum í öldudalnum á sínum tíma minnir mig að við höfum fengið 400 milljarða marka að láni (6 mörk jafngilda einni evru). Ég vona að Norðurlandaþjóðirnar rétti hver annarri hjálparhönd, að minnsta kosti þegar um lán er að ræða." „[Geir H.] Haarde sagði að einu mistökin sem íslensku bankarnir gerðu var að vera of góðir. Hann sagði að Íslendingar hefðu ekki komið þessu af stað heldur Lehman Brothers. Ég er að kafna úr hlátri." „Við lánum ekki sent! Hvað ætli Íslendingar þurfi svo sem? Þeir hafa mat = fiskinn. Þeir hafa hveri. Eyjan er nógu lítil til að hægt sé að komast hjólandi milli staða. Þá hafa þeir nóg af sauðfé til að gera sér hlýjar peysur. Hvernig leyfa þeir sér að biðja okkur um peninga núna þegar þeir voru að kaupa finnsk fyrirtæki fyrir lánsfé rétt um daginn?" „Íslenskir uppar voru að kaupa allan heiminn og voru ekkert nema hrokinn. Nú verðið þið bara að fara aftur í fiskveiðarnar, ha ha!" Gufubaðið - nú fyrst byrja þeir „Ísland er eins og nauðgari sem felur sig í runna við dimma götu. Það er engin lækning til og refsingar hafa ekkert að segja! Ég er að segja ykkur það, förum með Ísland bak við gufubaðið! [finnska máltækið að fara með einhvern bak við gufubaðið táknar að fara með viðkomandi þangað og skjóta hann. -blm.]" „Gleymum Íslandi bara, látum gleymskuna ýta þeim til baka á eyjuna sína. Mikil mistök tákna mikla þögn." „Íslendingar reka stærsta vogunarsjóð heims. Hann er svo stór að hann hefur sinn eigin gjaldmiðil. Haarde, það er skammarlegt að leika sér að peningum þegna sinna! Haarde, þú færð enga peninga frá okkur!" „Hvað hafa þeir hugsað sér að nota sem tryggingu fyrir láninu? Mér finnst það kyndugt að þjóð sem hefur 70 prósent tekna sinna af fiski þurfi erlent lán. Kílóið af þorski hlyti að þurfa að kosta það sama og kíló af kavíar áður en það kæmi til greina að lána þeim." Sighvatur laug engu Það er greinilegt að Finnar hafa engu gleymt síðan Sighvatur Þórðarson, hirðskáld Ólafs Noregskonungs helga, orti vísukornið hér að neðan. Þá hafði Ólafur gert innrás í Finnland en Finnar (sem í þá daga voru rammgöldróttir) tóku sig til og mögnuðu upp ógurlegt gjörningaveður og hröktu innrásarherinn af höndum sér. Verst að Ólafi tókst ekki innrásin því þá væru Finnar Norðmenn í dag og án efa til í að lána okkur milljarða. Hér er vísan: Hríð varð stáls í stríðri ströng Herdalagöngu Finnlendinga að fundi fylkis niðs hin þriðja. En austr við lá leysti leið víkinga skeiðar. Bálagarðs að barði brimskíðum lá síða.
Mest lesið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Lífið Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Lífið Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Lífið Fólk eigi ekki að vera hrætt við að skilja ekki Menning Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Lífið Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar Lífið Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Lífið Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög Fleiri fréttir Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Sjá meira