Bíó og sjónvarp

Ekki áhugi á söngleik

Leikkonan Cameron Diaz hefur ekki áhuga á að leika í söngleiknum Shrek á sviði. Diaz, sem talar fyrir prinsessuna Fionu í teiknimyndunum Shrek, er engu síður hrifinn af söngleiknum, sem var frumsýndur á Broadway fyrir skömmu.

„Nei, alls ekki," sagði Diaz spurð hvort hún vildi leika í söngleiknum. „Það sem þeir gera þarna á sviðinu er ómögulegt fyrir mig að leika eftir. Þeir standa sig ótrúlega vel og hafa lagt virkilega hart að sér."

Fjórða Shrek-myndin er væntanleg árið 2010 þar sem Diaz, Mike Myers og Eddie Murphy verða áfram í aðalhlutverkunum.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×