Bíó og sjónvarp

Mynd um innflytjendur

Leikarinn John Malkovich ætlar að gera heimildarmynd um ólöglega innflytjendur í Bandaríkjunum.
Leikarinn John Malkovich ætlar að gera heimildarmynd um ólöglega innflytjendur í Bandaríkjunum.

John Malkovich ætlar að gera heimildarmynd um ólöglega innflytjendur í Bandaríkjunum. Þegar hann frétti af þeim fjölda barna sem komast þannig til Bandaríkjanna ákvað hann að láta til skarar skríða.

Myndin, sem nefnist Triple Crossing, fjallar um mannlegu hliðina á þessu vandasama málefni. Fyrirtækið Canana Films mun framleiða myndina en það er í eigu mexíkósku leikaranna Diego Luna og Gael Garcia Bernal.

Malkovich er um þessar mundir í Mexíkó þar sem hann leikstýrir leikritinu The Good Canary þar sem Luna fer einmitt með aðalhlutverkið.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.