Bíó og sjónvarp

Vélmennið og gúrúinn

Æsispennandi framtíðarævintýri Wall-E og EVE í nýjustu mynd Pixar-versins.
Æsispennandi framtíðarævintýri Wall-E og EVE í nýjustu mynd Pixar-versins.

Í þessari viku eru tvær myndir frumsýndar, nýjasta myndin frá teiknimyndaverinu Pixar um vélmennið WALL-E, og gamanmyndin The Love Guru með Mike Myers.

Frumsýningarmyndirnar hafa vægast sagt fengið misgóðar móttökur. Á meðan gagnrýnendur keppast við að hlaða WALL-E lofi, er The Love Guru rifin niður og jafnvel sögð versta gamanmynd ársins.

Vélmenni sem allir elska
Dvergagrín Verne Troyer tekur á móti Mike Myers og félögum.

Vélmennið WALL-E virðist við fyrstu sýn vera teiknuð samsuða af umrenningi Chaplins, Mr. Bean og E.T. Hann er aðalsöguhetjan í nýjustu mynd snillinganna hjá teiknimyndaverinu Pixar, sem hafa fært okkur myndir eins og Toy Story, Cars og The Incredibles.

Myndin gerist í framtíðinni. Þegar mannkynið yfirgaf jörðina var WALL-E skilinn einn eftir til að taka til. Í hundruð einmanalegra ára hefur hann staðið í ströngu við tiltektir en líf hans tekur stórum breytingum þegar leitarvélmennið EVE birtist utan úr geimnum. WALL-E verður ástfanginn en EVE uppgötvar að WALL-E hefur óvart rekist á lykilinn að framtíð jarðarinnar. Mannkynið hefur lengi beðið eftir fregnum af því að óhætt sé að snúa heim svo EVE flýtir sér með fréttirnar út í geim. WALL-E eltir EVE og æsilegt ævintýri er í uppsiglingu þar sem gælukakkalakkar og bilað vélmannagengi kemur við sögu.

Leikstjóri og handritshöfundur WALL-E er Andrew Stanton sem einnig gerði Finding Nemo og A Bug's Life. Hann er einn af elstu starfsmönnum Pixar-versins, hefur unnið þar síðan 1990. Myndin hefur fengið frábæra dóma og gagnrýnendur spyrja unnvörpum hvernig sé eiginlega hægt annað en að elska þetta sniðuga vélmenni.

Þó að myndin sé að mestu án mikilvægra samtala er hún bæði sýnd á ensku og íslensku. Þau Atli Rafn Sigurðarson og Inga María Valdimarsdóttir tala fyrir Wall-E og EVE og munu aðallega hafa þurft að segja nafn hvort annars með mismunandi áherslum. Júlíus Agnarson upptökustjóri setti svo raddir þeirra í gegnum tölvuna og gerði þau „vélmannaleg".

Lærimeistari ástarinnar

Mike Myers hefur gert góða hluti í gríninu eins og frábærir taktar hans í myndum eins og Austin Powers- og Waynes World-myndunum sanna. Síðast sást hann þrælmeikaður sem kötturinn í The Cat in the Hat, en hann hefur einnig talað sem aðalsöguhetjan í Shrek-teiknimyndunum.

Nýrrar leikinnar myndar hefur því verið beðið með nokkurri eftirvæntingu.

Mike skrifaði handritið að The Love Guru ásamt Graham Gordy. Leikstjóri er Marco Schnabel og þetta er hans fyrsta mynd. Myndin, sem gerir góðlátlegt grín að Bollywood-myndunum svokölluðu, fjallar um Pitka (Mike Myers). Pitka er Bandaríkjamaður sem var alinn upp á Indlandi af gúrúum (lærimeisturum). Pitka flytur til Bandaríkjanna og leitar þar að frægð og frama í heimi sjálfshjálpar og andlegrar viðleitni. Ýmsir koma við sögu á þeirri leið, meðal annarra Jessica Alba, Justin Timberlake og dvergurinn Verne Troyer, sem varð heimsfrægur með Mike Myers sem Mini me.

Þrátt fyrir góðan ásetning þykir Mike Myers almennt hafa tekist fremur illa upp við að gera grín að Bollywood og hinum andlega heimi í Bandaríkjunum. Gúrúinn Pitka er fyrsti nýi karakterinn sem Mike býður upp á síðan Austin Powers kom fram. Kannski er Mike farinn að ryðga, hann þykir að minnsta kosti klikka á tímasetningum í gríninu. Það er örmjór þráður á milli fyndni og heimsku og Mike þykir í þessari mynd hafa týnt þeim þræði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×