Tónlist

Órafmögnuð tónlistarhátíð

Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur skipuleggur tónlistarhátíðina sem verður haldin á Rósenberg um helgina.
Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur skipuleggur tónlistarhátíðina sem verður haldin á Rósenberg um helgina.

Svavar Knútur Kristinsson skipuleggur órafmagnaða tónlistarhátíð um helgina. Listamenn frá fimm löndum koma fram.

Áhugasamtökin Undercover Music Lovers ætla að halda órafmagnaða tónlistarhátíð á nýopnuðum Café Rósenberg á laugardag og sunnudag. Á tónlistarhátíðinni verða átján atriði frá fimm löndum. Á meðal listamanna sem koma fram eru Toben Stock frá Þýskalandi, Owls of the Swamp frá Ástralíu, Kid Decker frá Bretlandi, Svavar Knútur, Helgi Valur, Bergþór Smári, Mike Pollock og Steini í Hjálmum.

„Það er rosalega mikilvægt að eiga áhugasamtök sem eru að einbeita sér að því að efla samfélag tónlistarmanna, ekki bara hagsmunatengsl heldur tengsl vináttu og samstarfs á tónlistarsviðinu,“ segir Svavar Knútur, sem skipuleggur hátíðina. Að sögn Svavars eru nokkur hundruð manns meðlimir í Undercover Music Lovers, þar af yfir áttatíu hérlendis. „Við erum að vinna þetta út frá hugmynd um félagsauð. Við reynum að brúa bilin á milli ólíkra hópa og þjóða og byggja líka upp traustið og samböndin innanlands,“ segir hann.

Undercover Music Lovers eru systrasamtök Hins alþjóðlega trúbadorasamsæris, sem stóð fyrr á þessu ári fyrir Ólympíuleikum trúbadora, þar sem fjórir trúbadorar frá þrem löndum ferðuðust um Ísland, Þýskaland og Holland og léku tónlist sína saman. Samtökin voru upprunalega stofnuð í Sydney og Melbourne í Ástralíu, en hafa ört fært út kvíarnar til Hamborgar og Reykjavíkur og bráðum New York.

Frítt er inn á tónleikana um helgina, sem standa yfir frá klukkan 16 til 23 báða dagana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.