Körfubolti

Skallagrímur fær bandarískan leikstjórnanda

Landon Quick er hér til hægri í baráttu við Rajon Rondo, sem í dag er leikstjórnandi NBA-meistara Boston Celtics
Landon Quick er hér til hægri í baráttu við Rajon Rondo, sem í dag er leikstjórnandi NBA-meistara Boston Celtics NordicPhotos/GettyImages

Skallagrímsmenn hafa ákveðið að skipta um leikstjórnanda, en Miroslav Andonov hefur alls ekki staðið undir væntingum síðan hann kom til liðisins.

Andonov verður því sendur heim og í hans stað er væntanlegur Bandaríkjamaðurinn Landon Quick sem lék með High Point háskólanum.

Quick þessi er væntanlegur til landsins eldsnemma á miðvikudagsmorguninn og vonir standa til um að hann verði orðinn löglegur þegar Skallarnir mæta Val í bikarnum á fimmtudagskvöldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×