Bíó og sjónvarp

Á toppnum í tvær vikur

Reese Witherspoon og Vince Vaughn þykja fara á kostum.
Reese Witherspoon og Vince Vaughn þykja fara á kostum.

Gamanmyndin Four Christmases hélt efsta sætinu yfir aðsóknarmestu myndirnar vestanhafs um síðustu helgi. Reese Witherspoon og Vince Vaughn leika aðalhlutverkin í myndinni sem fjallar um par sem þarf að heimsækja fjórar fjölskyldur foreldra sinna á einum degi.

Í öðru sæti á listanum var vampírumyndin Twilight og í því þriðja var teiknimyndin Bolt þar sem John Travolta talar fyrir aðalsöguhetjuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×