Bíó og sjónvarp

Nagli Benedikts til Svíþjóðar

Stuttmyndin Naglinn hefur verið valin í aðalkeppni Nordisk Panorama.
Stuttmyndin Naglinn hefur verið valin í aðalkeppni Nordisk Panorama.

Stuttmyndin Naglinn, í leikstjórn Benedikts Erlingssonar, hefur verið valin í aðalkeppni Nordisk Panorama-kvikmyndahátíðarinnar sem haldin verður í Svíþjóð í haust. Hátíðin er sérstaklega ætluð heimildar- og stuttmyndum og komust tvær íslenskar stuttmyndir inn í aðalkeppnina í ár.

Framleiðendur myndarinnar eru þeir Örn Marinó Arnarson og Þorkell Harðarson sem saman reka fyrirtækið Merkell.

„Við funduðum með Benedikt í fyrra og ætluðum að framleiða fyrstu myndina hans, Takk fyrir hjálpið, en hún endaði hjá öðrum framleiðanda. Við fengum svo veður af Naglanum og leist ljómandi vel á handritið og ákváðum að framleiða hana," segir Þorkell um upphafið á samstarfinu við Benedikt. „Það eru stórleikarar í næstum öllum hlutverkum myndarinnar og tónlistarkonan vinsæla, Ragnhildur Gísladóttir, semur tónlistina fyrir hana."

Benedikt Erlingsson, leikari og leikstjóri myndarinnar, segir að hægt sé að skilja myndina á marga vegu en að í stuttu máli fjalli hún um dauða og kynlíf eins og allar góðar sögur. „Ég vil helst ekki segja of mikið, en sagan er um mann sem verður fyrir slysi og í kjölfar þess leysast úr læðingi innra með honum áður óþekkt öfl," segir Benedikt, en hann er jafnframt höfundur handritsins.

Þrjár íslenskar heimildarmyndir voru einnig valdar til að taka þátt í hátíðinni og er heimildarmyndin Kjötborg þar á meðal. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×