Viðskipti innlent

Exista lækkar um 3 prósent

Exista, félag Bakkabræðra, leiðir lækkunina við opnun markaða.
Exista, félag Bakkabræðra, leiðir lækkunina við opnun markaða. Fréttablaðið/HARI

Úrvalsvísitalan lækkar í byrjun dags um 0,85 prósent. Hún stendur nú í 4137 stigum.

Exista leiðir lækkunina. Bréf félagsins hafa lækkað um 3,1 prósent frá opnun markaða.

Glitnir hefur lækkað um 1,25 prósent, Straumur um 0,96 prósent, Landsbankinn um 0,9 prósent og Kaupþing um 0,7 prósent.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×