Sport

Nadal og Murray mætast í undanúrslitum

Andy Murray
Andy Murray NordicPhotos/GettyImages

Rafael Nadal og Andy Murray munu mætast í undanúrslitum í karlaflokki á opna bandaríska meistaramótinu í tennis.

Nadal vann sigur á Mark Fish í undanúrslitum 3-6. 6-1, 6-4 og 6-2 og mætir Murray sem lagði hinn unga Juan Martin del Potro í maraþonviðureign 7-6, 7-6, 4-6 og 7-5.

Í kvennaflokki mættust bandarísku systurnar Serena og Venus Williams í fjórðungsúrslitum og þar hafði Serena betur að þessu sinni 7-6 og 7-6. Hún mætir Dinara Safina frá Rússlandi í undanúrslitunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×