Viðskipti innlent

Eimskip hækkar en flest lækkar

Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu hefur hækkað um 2,3 prósent í Kauphöllinni dag og Glitnir um 1,5 prósent. Á sama tíma hefur lækkun einkennt hlutabréfamarkaðinn hér. Gengi bréfa í Straumi hefur lækkað mest, eða um 1,28 prósent, Existu um 0,94 prósent, Færeyjabanka um 0,88 prósent, Marel um 0,81 prósent en minna í Icelandair, Kaupþingi, Össur og Bakkavör. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,3 prósent og stendur hún í 3.319 stigum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×