Heilsa

Ber að ofan á BMX

Emil Þór Guðmundsson hættir ekki að leika sér þó hann eldist.
Emil Þór Guðmundsson hættir ekki að leika sér þó hann eldist. Fréttablaðið/GVA

BMX hjólamenningin á Íslandi lætur ekki mikið fyrir sér fara en þó fer áhuginn á íþróttinni vaxandi.

Emil Þór Guðmundsson er BMX töffari í húð og hár. Hann segist hafa hjólað síðan hann man eftir sér og vill meina að hann sé faðir BMX á Íslandi.

„Ég hef alltaf verið að hjóla. Maður hefur gaman af þessu og hættir ekkert að leika sér þó maður eldist," segir hann.

Emil segir hóp fimmtán til tuttugu einstaklinga á aldrinum 16 - 30 ára hittast reglulega til að hjóla saman og áhuginn á sportinu sé að aukast. Aðstöðuleysi hrjái þó hópinn en það sé allt að koma til.

„Fólk vill ekki sjá svona villinga," segir hann kankvís. „Við erum í óþökk margra þar sem við komum okkur fyrir en einhversstaðar verða vondir að vera. Við erum fyrst og fremst að stökkva og aðstaðan sem við þurfum er svipuð og hjólabrettapallarnir, bara stærri. Við höfum notað allt sem við komumst í undanfarið og höfum núna komið okkur upp leynistað."

Undanfarin ár hafði hópurinn hjólað og staðið fyrir sýningum við rætur Öskjuhlíðar þangað til byggingaframkvæmdir hófust þar fyrir nokkru.

Aðspurður hvort þessi íþrótt sé hættuleg svarar Emil því til að það sé alveg hægt að slasa sig. „Menn snúa sér í hringi, fara í heljarstökk og gera allt sem þeim dettur í hug. Það er hægt að brjóta bein og fá falleg ör en það eru þá bara fleiri góðar sögur að segja frá."

Emil segir félagsskapinn samheldinn og hafa þau meðal annars farið saman til útlanda að hjóla. Í sumar eru svo framundan tvenn mót, annað í Fífunni í Kópavogi þann 17. maí og hitt niðri í fjöru í Kópavoginum 31. maí. Þar verða stig gefin fyrir búninga, stíl og stökk sem enda úti í sjó. Þegar Emil er inntur eftir fatatískunni í BMX sportinu segir hann best að vera ber að ofan. heida@frettabladid.is








×