Stjarnvísindamenn Karen D. Kjartansdóttir skrifar 21. október 2008 00:01 Ólafur Ragnar sem Íslendingar kynntust fyrst í þáttunum Næturvaktinni er drengur góður. Manni finnst óskiljanlegt að hægt sé að níðast á jafn hrekklausri sál eins og Georg Bjarnfreðarson, Nígeríusvindlarinn og pervertinn hún Gugga gera. Einhverra hluta vegna skellihlæja áhorfendur að óhamingju hans. Ástæðan fyrir því að fólk hlær illgirnislega er heimska Ólafs. Þörfin fyrir að verða ríkur og einhvers metinn í samfélaginu rekur hann út í hverja óhamingjuna eftir aðra, hann forðast þó sífellt að horfast í augu við niðurlægingu sína og er nægilega einfaldur til að brotna ekki niður. Í einfeldni sinni telur hann sér trú um að hann skipti einhverju máli. Síðustu vikur hef ég ekki getað horft á hryllinginn sem fram fer í skemmtiþáttunum Dagvaktinni. Örlög Ólafs Ragnars eru nefnilega farin að líkjast of mikið niðurlægingu Íslendinga allra gagnvart heiminum. Hafi einhver trúað því að Ólafur væri umboðsmaður hljómsveitar sem væri alveg að fara meika það hefur sá hinn sami fyrir löngu komist að hinu sanna. Draumar Ólafs og tálsýnir hafa verið tættar í sundur frammi fyrir ótal hlæjandi áhorfendum sem hálf skammast sín fyrir hönd litla aumingjans á upphækkuðu skónum. Kastljósi fjölmiðla heimsins hefur verið beint að Íslandi og þolinmæði áhorfenda fyrir örlögum sögupersónanna helgast af því hve ógeðslega hlægilegar þær eru. Myndavélum veraldar er beint að fjölda klunnalegra en ægilega dýrra jeppa sem silast um götur landsins. Í þeim á eigandinn yfirleitt jafn mikið og Ólafur Ragnar átti í þeim hvíta sem hann mætti eitt sinn á sjálfum sér til háðungar. Draumur hans um að eignast hann með bílaláni var jafn óraunverulegur og nígerísku auðæfin sem hann beið eftir og pappírsauðurinn sem íslenskir ráðamenn trúðu á. Ég get ómögulega hlegið að óförum þeirra Ólafs Ragnars, starfsmanns á plani, og Geirs Haarde, fyrrverandi fjármála- og núverandi forsætisráðherra Íslands. Það er svo sárt að fylgjast með þeim reyna að halda reisn. Robert Z. Aliber, prófessor emeritus við háskólann í Chicago, sagði í gær um Geir og kollega hans í ríkisstjórninni að þeir myndu nýtast jafn vel sem stjarnvísindamenn og þeir gera sem stjórnendur nútíma hagkerfis. En Geir á eftir að taka þeirri gagnrýni á svipaðan átt og Ólafur Ragnar gerir þegar hann veit ekki hvað hann er að tala um, brosa og segja: „Þetta eru nú engin geimvísindi." Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Karen Kjartansdóttir Mest lesið Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun Áfastur plasttappi lýðræðisins Þórður Snær Júlíusson Skoðun Halldór 22.02.2025 Halldór Opið bréf til bæjarstjóra Kópavogs Ágústa Dröfn Kristleifsdóttir Skoðun Áslaug Arna er leiðtoginn sem Sjálfstæðisflokkurinn þarf Hafrún Kristjánsdóttir Skoðun Söngvakeppnin og hömlulaus áfengisdýrkun Björn Sævar Einarsson Skoðun Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga er sama um menntun barna en hvað með foreldra? Helga C Reynisdóttir Skoðun Harka af sér og halda áfram Hulda Jónsdóttir Tölgyes Skoðun Háskóli Íslands fyrir öll - Rektorsframboð Silju Báru Ólöf Bjarki Antons og Atli María Kjeld Skoðun Góðir vegir – Aukin lífsgæði og blómlegt atvinnulíf Edda Rut Björnsdóttir Skoðun
Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga er sama um menntun barna en hvað með foreldra? Helga C Reynisdóttir Skoðun
Háskóli Íslands fyrir öll - Rektorsframboð Silju Báru Ólöf Bjarki Antons og Atli María Kjeld Skoðun
Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga er sama um menntun barna en hvað með foreldra? Helga C Reynisdóttir Skoðun
Háskóli Íslands fyrir öll - Rektorsframboð Silju Báru Ólöf Bjarki Antons og Atli María Kjeld Skoðun