Bíó og sjónvarp

Íkveikja frestar mynd

Framleiðslu á nýjustu mynd Johns Travolta, From Paris With Love, hefur verið frestað.
Framleiðslu á nýjustu mynd Johns Travolta, From Paris With Love, hefur verið frestað.

Framleiðslu hefur verið frestað á nýrri hasarmynd Johns Travolta, From Paris With Love, eftir að kveikt var í tíu bílum sem átti að nota í myndinni.

Íkveikjan átti sér stað í úthverfi Parísar þar sem fjöldi innflytjenda býr. Mikil uppþot urðu í sama hverfi fyrir þremur árum. Tökur á myndinni áttu að hefjast á mánudag og áttu þær að standa yfir í tólf vikur í París. Í myndinni leikur Travolta njósnara og Jonatahan Rhys Meyers leikur starfsmann sendiráðs sem lendir í mikilli hættu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.