Körfubolti

Fyrsti sigur Njarðvíkur

Valur Ingimundarson og félagar í Njarðvík unnu sinn fyrsta sigur í kvöld
Valur Ingimundarson og félagar í Njarðvík unnu sinn fyrsta sigur í kvöld

Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld. Njarðvík vann sinn fyrsta leik í vetur þegar liðið skellti Stjörnunni í Garðabæ 86-77.

Keflavík vann öruggan sigur á ÍR á heimavelli 92-69. Gunnar Einarsson skoraði 25 stig fyrir Keflavík og Sigurður Þorsteinsson 22 stig (10 frák). Sveinbjörn Claessen skoraði 18 stig fyrir ÍR og Ómar Sævarsson 16 (13 fráköst).

Þá vann FSu stórsigur á Skallagrími 98-56. Vésteinn Sveinsson skoraði 26 stig fyrir FSu, Árni Ragnarsson 20 stig og Sævar Sigurmundsson 18 stig. Þorsteinn Gunnlaugsson var í algjörum sérflokki hjá Skallagrími með 27 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×