Viðskipti innlent

Úrvalsvísitalan fallin um 39 prósent frá áramótum

Úrvalsvísitalan hefur fallið um rúm 39 prósent frá áramótum og hefur ekki verið lægri síðan um miðjan mars 2005. Þetta merkir að tveggja og hálfs árs gengishækkun er horfin úr Kauphöllinni. Úrvalsvísitalan fór hæst í 9.016 stig 18. júlí í fyrra. Hún hefur fallið um 3,3 prósent í dag og hafa því 57 prósent farið af henni síðan þá. Lækki vísitalan um 13,5 prósent til viðbótar hverfur öll hækkun ársins 2005 úr Kauphöllinni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×