Bíó og sjónvarp

Á hassknúnum flótta

Seth Rogen og James Franco í hlutverkum sínum í Pineapple Express.
Seth Rogen og James Franco í hlutverkum sínum í Pineapple Express.

Grínmyndin Pineapple Express verður tekin til sýninga í kvikmyndahúsum hérlendis nú um helgina, en einn framleiðenda myndar­innar er enginn annar en Judd Apatow, maðurinn á bak við myndir á borð við Knocked Up og Superbad.

Pinapple Express skartar þeim Seth Rogen, sem var einmitt í burðarhlutverki í Knocked Up, og James Franco, sem er einna þekktastur fyrir leik sinn í myndunum um Kóngulóarmanninn, í aðalhlutverkum. Rogen leikur letingjann og hasshausinn Dale sem verður fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að verða vitni að morði. Hann leitar skelfingu lostinn ásjár hjá eiturlyfjasalanum sínum Saul, sem Franco leikur af sannfærandi deyfð, en morðingjarnir fylgja fast á hæla hans. Þeir félagar Dale og Saul eiga því fótum sínum fjör að launa þar sem þeir skjótast af einum felustað á annan og lenda í ýmsum hrakningum í baráttu sinni við að halda lífi.

Hasshausagrínmyndir hafa fyrir margt löngu skipað sér fastan sess innan Hollywood-iðnaðarins. Skemmst er að minnast myndanna um Harold og Kumar sem notið hafa nokkurra vinsælda undanfarið; Cheech og Chong slógu í gegn með hasshausagríni sínu á áttunda og níunda áratug síðustu aldar og Coen-bræður gerðu heimssýn afdankaðra dagreykingamanna góð skil með tímamótaverkinu The Big Lebowski fyrir sléttum tíu árum. Pineapple Express sker sig þó nokkuð úr þessum hópi; vissulega er hún í grunninn grínmynd sem gerir að mestu út á þá einfeldni og vænisýki sem oft vill fylgja ótæpilegri neyslu kannabisefna, en hún er einnig talsvert ofbeldisfyllri en flestar slíkar myndir hafa hingað til verið. Líkast til má kenna leikstjóranum um, en hann heitir David Gordon Green og hefur fram að þessu einvörðungu leikstýrt ódýrum listrænum og dramatískum myndum. Hann hefur þó viðurkennt að hafa sérlegt dálæti á hasarmyndum níunda áratugarins, svo sem Tango & Cash, Surf Nazis must die og Death Wish 3. Af erlendum dómum um Pineapple Express að dæma má telja ljóst að áhrifa ofangreindra mynda gætir þar svo um munar. Bílaeltingaleikir, sprengingar og ítrekuð og blóðug slagsmál eru á meðal þess sem skreytir myndina inn á milli brandaranna.

Ljóst er að myndin er vel til þess fallin að skemmta fullorðnu og vitibornu fólki, en vert er að benda á að þrátt fyrir að hún skarti gamanmyndastimplinum er hún þó bönnuð innan 16 ára.

vigdis@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×