Körfubolti

Gunnar hefur gert þetta 100 sinnum áður

Sigurður Ingimundarson lofaði karakterinn í sínum mönnum í Keflavík eftir að þeir tryggðu sér sæti í úrslitum Iceland Express deildarinnar með stórsigri á ÍR í oddaleik í kvöld.

"Það var frábært hjá okkur að vinna þetta sterka lið eftir að við lentum 2-0 undir. Mig langar að hrósa ÍR fyrir að vera frábært lið og ég er bara mjög ánægður að við höfum unnið þá. Við sýndum frábæran karakter í síðustu þremur leikjunum og ég get ekki verið annað en ánægður með mína menn," sagði Sigurður í samtali við Stöð 2 Sport.

Hann var spurður út í framlag Gunnars Einarssonar, en Gunnar skoraði 23 stig og hirti 7 fráköst í leiknum og hitti m.a. úr 5 af 6 þristum sínum.

"Gunnar Einarsson spilaði mjög vel á báðum endum vallarins og þetta var enn eitt dæmið um það að við erum að fá þetta framlag frá mörgum mönnum. Gunnar hefur gert þetta 100 sinnum áður og kann þettta allt saman," sagði Sigurður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×