Viðskipti innlent

Bakkavör hækkar á rólegum degi

Bakkabræður, stofnendur Bakkavarar.
Bakkabræður, stofnendur Bakkavarar. Mynd/GVA
Gengi hlutabréfa í Bakkavör hækkaði um 1,35 prósent í einum viðskiptum upp á 40 þúsund krónur í Kauphöllinni í dag. Þetta er jafnframt eina hreyfingin á íslenskum hlutabréfamarkaði. Tvenn viðskipti hafa aðeins átt sér stað í einu öðru félagi, Atorku, upp á 130 þúsund krónur. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,07 prósent og stendur hún í 652 stigum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×