Kreppan kemur við kaunin hjá Magasin du Nord 18. desember 2008 12:38
Fjármálakreppan setur strik í reikningin hvað jólaverslunina í Danmörku varðar og á það einnig við um stórverslunina Magasin du Nord sem er í eigu Íslendinga. Það eru þó ekki Danir sjálfir sem spara við sig jólainnkaupin heldur aðrir Norðurlandabúar sem heimsækja Magasin, einkum Svíar. Business.dk fjallar um málið og ræðir við Carsten Fensholt fjármálastjóra Magasin í Kaupmannahöfn. "Það skortir einfaldlega ferðamenn í Kaupmannahöfn í augnablikinu," segir Fensholt. "Það eru sérstaklega Svíar sem hafa ákveðið að vera heima hjá sér þessi jólin sökum þess hve sænska krónan er veik. En það er einnig áberandi hve fáir Norðmenn koma nú samanborið við áður fyrr. Salan hjá Magasin frá í haust, að jólaversluninni meðtalinni, er 3-5% minni en á sama tíma í fyrra er sölumet var slegið. Fensholt segir að þeir geti séð á greiðslukortakvittunum að það séu einkum ferðamenn sem sækja verslunina í minna mæli en áður. Hann segir þó að jólaverslunin sé í viðunandi horfi þrátt fyrir allt talið um fjármálakreppuna.
Mest lesið Staðreyndum snúið á hvolf til að eigna ríkisstjórninni verðbólguna Viðskipti innlent Seðlabankinn hafi ekki önnur úrræði en að lækka vexti Viðskipti innlent Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Tónleikastöðum fækkar: „Þetta er bara sorgleg þróun“ Viðskipti innlent Temu kaupin geti hæglega orðið að fíkn Neytendur Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Spá áframhaldandi óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Viðskipti innlent Susan Wojcicki er látin Viðskipti erlent „Allt að því galið“ að taka ekki þátt í séreignarsparnaði Viðskipti innlent Sprenging í sölu á sérsmíðuðum saunaklefum Samstarf Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira