Formúla 1

Hamilton: Erfitt að vinna titil aftur

Lewis Hamilton og Nicole Schwarzinger munu verja jólunum með fjölskyldu Hamiltons í Bretlandi.
Lewis Hamilton og Nicole Schwarzinger munu verja jólunum með fjölskyldu Hamiltons í Bretlandi. Mynd: Getty Images

Heimsmeistarinn Lewis Hamilton telur að reglubreytingar muni opna möguleika fyrir ný lið í toppslagnum á næsta ári.

"Það er erfitt að meta hvaða lið verða með öfluga bíla. Trúlega þó McLaren, Ferrari og BMW. Kannski verður eitt lið til viðbótar sem lætur að sér kveða", sagði Hamiton um komandi tímabil.

Fjölmargar reglubreytingar FIA gætu jafnað leikinn í Formúlu 1, nýjar yfirbygginar, ný dekk og ýmis konar búnaður hefur sett lið á byrjunarreit.

"Það verður mjög erfitt að vinna titilinn aftur, með öllum þessum breytingum. Þá getum við æft minna samkvæmt nýjum reglum og það kemur niður á einhverjum liðum. Það eru allir í sama báti og við verðum bara að vinna heimavinnu okkar eins og aðrir", sagði Hamilton.

Hann ver jólunum með kærustu sinni, söngkonunni Nicole Schwarzinger og fjölskyldu í Bretlandi. Að öllu jöfnu býr hann í Sviss, til að forðast athygli fjölmiðla sem elta hann á röndum í Bretlandi.

Sjá reglubreytingar 2009






Fleiri fréttir

Sjá meira


×