Bíó og sjónvarp

Golden Globe verðlaunahátíðin blásin af

Verkfall handritahöfunda í Hollywood gerir það að verkum að ákveðið hefur verið að hætta við Golden Globe verðlaunahátíðina og halda blaðamannafund í staðinn þar sem úrslitin verða kynnt.

Aðstandendur Golden Globe greindu frá þessu í gærkvöldi. Ástæðan er sú að margir þekktir leikarar höfðu ákveðið að mæta ekki á hátíðina til að sýna samstöðu með handritshöfundunum.

Golden Globe verðlaunin koma næst á eftir Óskarsverðlaununum hvað virðingu varðar í kvikmyndaheiminum vestan hafs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×