Viðskipti erlent

Skellur á bandarískum hlutabréfamarkaði

Bandarískir fjárfestar eru uggandi um horfur í efnahagslífinu vestanhafs.
Bandarískir fjárfestar eru uggandi um horfur í efnahagslífinu vestanhafs. Mynd/AP

Dow Jones-hlutabréfavísitalan féll um heil 200 stig, rúmt prósentustig við upphaf viðskiptadagsins í Bandaríkjunum í dag. Heldur blés í lækkunina eftir því sem á leið og féllu helstu vísitölurnar um 1,8 prósent að meðaltali rúmum klukkutíma síðar.

Slæmar afkomutölur fyrirtækja á borð við trygginga- og fjármálarisann AIG og tölvurisann Dell eiga stóran þátt í lækkanaferlinu en fjárfestar þóttust greina slæmar horfur í máli forsvarsmanna fyrirtækjanna.

Þá eiga tölur um stöðnun í einkaneyslu á milli mánaða hlut að máli. Það þykir auka líkurnar á samdrætti í einkaneyslu vestanhafs til muna.

Bandarískt hagkerfi er að langmestu leyti drifið áfram af einkaneyslu. Samdráttur í þeim flokki getur því haft víðtæk áhrif, svo sem smitað út frá sér í minni innflutningi. Gerist það er reiknað með að áhrifanna gæti gætt hjá helstu viðskiptalöndum Bandaríkjanna.

Nú um fjögurleytið að íslenskum tíma hafði Dow Jones-vísitalan lækkað um 1,81 prósent og Nasdaq-vísitalan um 1,82 prósent.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×