Viðskipti erlent

Innkalla næstum allar tegundir Heparin

Einungis einum degi eftir að bandaríska lyfjafyrirtækið Baxter innkallaði blóðþynningalyfið Heparin kom í ljós að einn sjúklingur til viðbótar hafði látið lífið af völdum þess.

Í janúar innkallaði fyrirtækið lyfið í vökvaformi eftir að fjögur dauðsföll voru tengd því og hundruð ofnæmistilfella komu í l jós.

Á föstudag kom fram í dagblaðinu New York Times að Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna hefði uppgötvað að mögulega tengdust 17 dauðsföll til viðbótar lyfinu.

Dagblaðið sagði að stofnunin beindi sjónum sínum að kínverskri verksmiðju sem framleiddi virka efnið í Heparin, en það er framleitt úr slímkenndri himnu úr þörmum svína.

Í bréfi sem birt var á heimasíðu stofnunarinnar var farið yfir framleiðsluferli lyfsins. Þar sagði að í sumum tegundum lyfsins sem seldar voru í Bandaríkjunum hafi meðal annars verið efni frá óásættanlegum verksmiðjuaðila.

Rannsókn Matvæla- og lyfjastofnunarinnar er ekki lokið, en á CNN kemur fram að talið sé að vandamálið tengist kínversku verksmiðjunni Changzhou SPL.

Eina tegund lyfsins sem enn er eftir á markaði er í fljótandi formi ætlað fyrir sprautur, en í því eru ekki efni frá Kína.

Innköllun lyfsins er ekki líkleg til að hafa áhrif á önnur lyf Baxter og einungis fá lyfja þeirra eru að hluta framleidd í Kína og ekkert annað frá umræddri verksmiðju í Kína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×