Sport

Ragna varð að hætta vegna meiðsla

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragna Ingólfsdóttir, badmintonkona.
Ragna Ingólfsdóttir, badmintonkona. Mynd/GVA

Ragna Ingólfsdóttir varð að hætta keppni á alþjóðlegu badmintonmóti í Króatíu í dag er hún sneri sig á ökkla.

Hún mætti Kristinu Ludikova frá Tékklandi í fyrstu umferð mótsins í morgun en varð að gefa viðureignina í annarri lotu.

Í tilkynningu frá Badmintonsambandi Íslands kemur fram að meiðsli hennar séu ekki talin alvarleg en þó er talið líklegt að hún þurfi að fækka mótum á næstunni og leggja áherslu á Evrópumótið í apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×