Sport

Guðmundur og Magnea meistarar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðmundur Stephensen og Magnea Ólafs.
Guðmundur Stephensen og Magnea Ólafs.

Guðmundur Stephensen og Magnea Ólafs urðu í dag Íslandsmeistarar í tvenndarleik í borðtennis en mótið fer fram í KR-heimilinu nú um helgina.

Þau báru sigurorð af þeim Kjartani Briem, KR, og Ragnhildi Sigurðardóttur, Víkingi í úrslitaviðureigninni. Guðmundur og Magnea keppa bæði fyrir Víking.

Í 3.-4. sæti urðu annars vegar þau Ingólfur Ingólfsson og Guðrún Björnsdóttir úr KR og Magnús Magnússon og Lilja Rós Jóhannesdóttir úr Víkingi hins vegar.

Á morgun fara svo úrslit og undanúrslit fram í bæði einliða- og tvíliðaleik karla og kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×