Viðskipti erlent

Gagnrýna skipan stjórnarformanns M&S

Ný staða Stuart Rose hefur verið harkalega gagnrýnd af sumum hluthöfum.
Ný staða Stuart Rose hefur verið harkalega gagnrýnd af sumum hluthöfum. MYND/AFP

Lord Burns stjórnarformaður verslunarkeðjunnar Marks & Spencer mun í vikunni reyna að sannfæra reiða fjárfesta um að stöðuhækkun Stuart Rose, eins yfirmanna fyrirtækisins upp í starfandi stjórnarformann, sé fyrirtækinu í hag.

Fjárfestar á borð við Legal & General sem eiga 4,9 prósent hlut í M&S hafa kvartað til stjórnarinnar um að ný staða Stuart sé andstæð samræmdum reglum um stjórnun fyrirtækja. Mark Burgess stjórnarmaður Legal & General hefur gagnrýnt ákvörðunina og segir að fyrirtækinu sé betur borgið með tvær aðgreindar stöður. Aðrir hluthafar sem hafa lýst vanþóknun sinni á ákvörðuninni eru meðal annarra Axa Management og ABI viðskiptaeiningin í forsvari fyrir fjárfesta.

Burns segist hafa skýrt flestum hluthöfum M&S frá stöðuveitingunni síðustu helgi en hann hafi ekki náð tali af Burgess. Stjórnin hefði beðið fram á síðustu stundu þar sem hún vildi ekki að viðkvæmar upplýsingar lækju á markaðinn.

Stuart segir að ný staða hans gefi honum og stjórninni tíma til að velja arftaka hans. Hann hafði gefið í skyn að hann myndi hætta árið 2009, en mun nú halda áfram til ársins 2011 til að hjálpa til við þjálfun nýs starfandi stjórnarformanns. Það muni einnig leyfa stjórnarmeðlimum að aðlagast nýjum stöðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×