Formúla 1

Kristján keppti í fyrsta Formúlu 3 mótinu

Kristján Einar Kristjánsson keppti í Formúlu 3 í fyrsta skipti í Bretlandi í dag.
Kristján Einar Kristjánsson keppti í Formúlu 3 í fyrsta skipti í Bretlandi í dag.

Kristján Einar Kristjánsson keppti í sinni fyrstu Formúlu 3 keppni á Bretlandseyjum í dag. Hann keppti í tveimur umferðum og varð í fimmt sæti í þeirri fyrri og sjötta sæti í þeirri seinni í sínum flokki, en 27 ökumenn tóku þátt í mótinu.

Mótaröðin skiptist í tvo flokka, alþjóðlegan flokk og landsflokk þar sem Kristján keppir. Þeir bílar eru 1,5 sekúndum hægari í hring en í alþjóðlega flokknum. Kristján ekur með Carlin Motorsport, sem hafði í sínum röðum sigurvegara dagsins í báðun flokkum.

,,Það tekur á taugarnar að aka hratt fyrir afan bíla keppinautanna og þá sérstaklega pirrings-taugarnar, ef svo má segja. Ég lenti í einum ökumanni sem keyrði inn í hliðina á mér, þegar ég reyndi framúarkstur. Ég kærði atvikið en það kom ekkert út úr því. En ég er búinn að læra mikið ", sagði Kristján.

Sýnt verður frá viðureignum Kristjáns í sérstakri umfjöllun í kringum Formúlu 1 útsendingar á Stöð 2 Sport.

nánar á www.kappakstur.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×