Viðskipti innlent

Fyndni á nýjum vef

Kona með höfuðverk.
Kona með höfuðverk.
Fjárfestar og annað áhugafólk um hreyfingar á hlutabréfamarkaði hafa oftar en ekki bölvað óþjálum og ógagnsæjum vef Kauphallar Íslands. Steininn tók þó fyrst úr þegar Kauphöllin komst í eigu OMX. Núna hafa enn verið gerðar breytingar á vefnum með samruna OMX og Nasdaq og er sumt til bóta, en annað í takt við fyrri tíð, eins og gengur. Nýbreytni er hins vegar auglýsingaborði yfir fréttahluta vefsins hér heima. Línurit birtist og leitar æ neðar sem það færist yfir skjáinn áður en það brotnar. „Hausverkur?" er spurt og í ljós kemur auglýsing fyrir vel þekkt verkjalyf. Þykir þetta nokkur kaldhæðni í ljósi lækkana síðustu missera og aðgengileika vefsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×