Sport

Helgi og Ragna keppa ekki í tvenndarleiknum

Ragna Ingólfsdóttir
Ragna Ingólfsdóttir Mynd/Völundur

Nú er ljóst að Ragna Ingólfsdóttir og Helgi Jóhannesson munu ekki verja Íslandsmeistaratitil sinn í tvenndarleik á meistaramótinu í badminton um helgina.

Ragna hefur ákveðið að hætta við keppni í tvenndarleiknum að læknisráði eftir að hún meiddist á móti í Króatíu í síðasta mánuði, en hún ætlar engu að síður að keppa í einliða- og tvíliðaleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×