Bíó og sjónvarp

English Pub í þýskri mynd

Arnar segist ekki hafa komist fyrir inni á barnum meðan á tökum stóð.
Arnar segist ekki hafa komist fyrir inni á barnum meðan á tökum stóð. MYND/Valli

English Pub var undirlagður af kvikmyndatökufólki fyrr í vikunni, þegar þar fóru fram lokatökur á þýsk/íslenskri sjónvarpsmynd.

„Þeir voru á barnum í næstum átján klukkustundir að taka upp efni. Það var ansi mikið af fólki þarna við vinnu og við eigendurnir komumst ekkert inn á staðinn á meðan tökur fóru fram," segir Arnar Þór Gíslason, eigandi English Pub, en þetta er í þriðja sinn sem hann lánar barinn undir tökur, en sakamálaþættirnir Svartir englar voru meðal annars teknir upp á barnum.

„Við komumst aftur til vinnu eftir klukkan sjö í gær, það er búið að vera nóg að gera hjá okkur undanfarna daga vegna Ólympíuleikanna. Svo er vertíðin okkar að byrja aftur með enska boltanum þannig að það er allt komið á fullt sving, eins og maður segir á góðri íslensku."

Arnar segir að lukkuhjólið vinsæla sé enn á sínum stað og segir að von sé á skemmtilegri nýjung í lukkuleikjunum. „Við erum að þróa með okkur eina hugmynd sem hefur fengið nafnið Skák­klukka dauðans. Þetta verður skemmtilegur en stórhættulegur leikur," segir Arnar að lokum. - sm








Fleiri fréttir

Sjá meira


×