Formúla 1

Sálfræðistríð í Sjanghæ

Felipe Massa er með besta meðatalið í tímatökum og ekur í nótt á brautinni í Sjanghæ í Kína.
Felipe Massa er með besta meðatalið í tímatökum og ekur í nótt á brautinni í Sjanghæ í Kína. mynd: kappakstur.is

Nokkuð hefur borðið á því að keppendur í titilslagnum í Formúlu 1 og utan hans hafi beitt fyrir sig fjölmiðlum síðustu daga til að koma högg á andstæðinginn. En í nótt kemur í ljós hver hefur munnin fyrir neðan nefið.

Lokaæfing fyrir tímatökuna verður kl. 03.00 og tímatakan verður kl. 05.45 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í opinni dagskrá. Þá kemur í ljós hvort ökumennirnir þrír í titilslagnum ná settu marki.

Robert Kubica var í vandræðum með BMW bíl sinn s.l. nótt og náði aðeins tólfta besta tíma, Felipe Massa varð sjötti og Lewis Hamilton var fljótastur.

Eftir æfingarnar slógu Ferrari menn á létta strengi og héldu upp á 29 ára afmæli meistarans Kimi Raikkönen. Hann á ekki lengur möguleika á titlinum, en verður Massa til stuðnings í mótinu.

Miðað við æfingatímana í nótt gætu ýmsir ökumenn blandað sér í baráttuna um fremstu sætin á ráslínu. Fernando Alonso og Nelson Piquet voru með annan og þriðja besta tíma á æfingum í nótt og Alonso vann tvö síðustu mót.

Heikki Kovalainen á McLaren hefur ekki náð þeim árangri sem hann var að vonast eftir á árinu og mótið um helgina gæti verið stökkpallur fyrir hann. En hann verður eins og Raikkönen að styðja við Hamilton af fremsta megni.

Massa hefur verið fremstur á ráslínu í 5 mótum á árinu, en Hamilton sex sinnum. Massa er samt með betra meðaltal. Kovalainen er svo þriðji, á undan Raikkönen hvað árangur í tímatökum varðar. Alonso er fimmti og Jarno Trulli sjötti.

Sjá brautarlýsingu í Kína












Fleiri fréttir

Sjá meira


×