Viðskipti innlent

Aðeins Eimskip hækkaði í Kauphöllinni

Eimskip sigli eitt á grænum sjó í Kauphöllinni í dag en gengi bréfa þess hækkaði um 0,82 prósent. Á sama tíma skelltist Atorka Group niður um 16,25 prósent og gengi bréfa í Century Aluminum um 12,34 prósent. Þá féll gengi bréfa í Icelandair Group um 2,82 prósent, Bakkavör lækkaði um 1,05 prósent, Færeyjabanki um 0,67 prósent og bréf Marel Food Systems um 0,28 prósent. Viðskipti voru 52 talsins upp á 26,4 milljónir króna. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,42 prósetn og endaði í 672 stigum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×