Lífið

Tekur íbúð Friðriks Ómars í gegn

Þórunn er fagurkeri.
Þórunn er fagurkeri.

„Við erum að vinna síðustu tvo Innlit-útlit þættina sem verða sýndir 13. og 20. maí á Skjánum en svo fara þættirnir í sumarfrí. Það eru nýjir og spennandi tímar framundan hjá mér en breytingar í þessum geira breytast liggur við á korters fresti,“ segir Þórunn Högnadóttir ritstjóri Innlits-útlits.

„Við förum í breytingar heima hjá Friðrik Ómari í síðasta þættinum þar sem við hressum upp á hjá honum en þessa dagana erum við að klára þetta áður en hann fer til Serbíu. Það er brjálað að gera hjá honum. Við breytum smá í stofunni og eldhúsinu. Já hann er tvímælalaust smekkmaður. Þeir eiga mjög fallegt heimili."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×