Körfubolti

Goðsagnirnar taka þátt í skotkeppninni

Það verður mikið um dýrðir á Stjörnuleikjum KKÍ sem fram fara á Ásvöllum í Hafnarfirði á laugardaginn.

Nú hefur verið tilkynnt að nokkrar af bestu þriggja stiga skyttum sögunnar hafi boðað komu sína í skotkeppnina hjá körlunum.

Þannig munu gamlar kempur eins og Guðjón Skúlason, Falur Harðarson, Teitur Örlygsson, Herbert Arnarsson, Kristinn Friðriksson og Jón Arnar Ingvarsson etja kappi við bestu skyttur Iceland Express deildarinnar.

Af stjörnum dagsins í dag sem taka þátt má nefna landsliðsmennina Pál Axel Vilbergsson frá Grindavík, Loga Gunnarsson úr Njarðvík og þá Jón Arnór Stefánsson og Jakob Sigurðarson úr KR. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×