Körfubolti

Flake til Breiðabliks

Elvar Geir Magnússon skrifar
Flake tekur við verðlaunum frá KKÍ.
Flake tekur við verðlaunum frá KKÍ. Mynd/E. Stefán

Bandaríkjamaðurinn Darrell Flake mun leika með nýliðum Breiðabliks í Iceland Expressdeildinni næsta vetur. Frá þessu er greint á heimasíðu Kópavogsliðsins.

Flake er 28 ára gamall en undanfarin tvö tímabil hefur hann leikið með Skallagrími. Hann skoraði 23,9 stig að meðaltali í leik í vetur í Iceland Expressdeildinni og hirti 13 fráköst.

Flake hefur einnig leikið með KR og Fjölni. Hjá Breiðabliki mun hann leika aftur með Nemanja Sovic en þeir tveir voru í herbúðum Fjölnis veturinn 2004-2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×