Lífið

Dogma mokar út Dorrit-bolum

Verslunin Dogma við Laugaveg hefur í dag selt meira en 100 boli með hinum ódauðlegu ummælum íslensku forsetafrúarinnar: ,,Ísland er stórasta land í heimi!"

Bolurinn var hannaður og settur í framleiðslu strax eftir leikinn í gær. Fyrsta prentun var svo tilbúin til sölu í fyrir lokun verslunarinnar í gær.

Þegar þetta er skrifað er svo verið að klára þriðju prentun. Jón Andrés, eigandi Dogma, segir að fólk á öllum aldri hafi fengið sér bolinn. Ungir sem aldnir. ,,Ég held að sá elsti hafi verið um sextugt," segir hann.

Jón ætlar að standa við búðarborðið og selja Dorrit-boli til klukkan 10 í kvöld.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.