Handbolti

Fjórtán marka sigur Rúmeníu

Elvar Geir Magnússon í Laugardalshöll skrifar
Rakel Dögg Bragadóttir.
Rakel Dögg Bragadóttir.

Rúmenska kvennalandsliðið vann fjórtán marka sigur gegn því íslenska í Laugardalshöllinni í dag. Þetta var fyrri leikur þessara liða um laust sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins.

Leikurinn endaði 23-37 en yfirburðir Rúmeníu í fyrri hálfleik voru algjörir og staðan 8-21 í leikhléi.

Markaskorarar Íslands: Dagný Skúladóttir 5, Hanna Stefánsdóttir 5 (3 víti), Sólveig Lára Kjærnested 4, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 3, Sunna María Einarsdóttir 2, Stella Sigurðardóttir 2, Rakel Dögg Bragadóttir 1, Hildigunnur Einarsdóttir 1.

Varin skot: Berglind Hansdóttir 18 (2 víti).

Leikurinn var í beinni textalýsingu hér á Vísi og má sjá hana hér að neðan.

16:21 Leik er lokið. 23-37.

16:17 Stuðningsmaður Rúmeníu með fánalitana málaða í andlitið hljóp fyrir framan stuðningsmenn Íslands veifandi rúmenska fánanum. Rúmenar farnir að fagna sigri enda aðeins þrjár mínútur eftir.

16:16 Berglind varði annað víti. Rúmenar með fjórtán marka forskot þegar Júlíus Jónasson tekur leikhlé.

16:14 Berglind Hansdóttir að verja víti. Komin með sautján bolta. Fimm mínútur eru eftir af leiknum. 20-33.

16:10 Staðan er 19-33.

16:08 Hanna að skora af vítalínunni sitt fjórða mark. Neðst á síðunni má fylgjast með markaskorurum íslenska liðsins.

16:04 Fjórtán marka forystu rúmenska liðsins sem er einfaldlega númeri of stórt fyrir það íslenska. Berglind Hansdóttir er farin að finna sig í markinu og komin með 15 skot varin.

16:00 Dagný Skúladóttir hefur átt fínan leik og er markahæst í íslenska liðinu með fjögur mörk.

15:58 Rúmenska liðið aftur komið í gírinn. 12-27.

15:53 Hanna Stefánsdóttir komin með þrjú mörk og Sólveig og Sunna hafa skorað tvö mörk. Skásti leikkafli íslenska liðsins hingað til. 11-24.

15:48 Seinni hálfleikur er hafinn. Rúmenska liðið heldur uppteknum hætti og skoraði fyrsta mark seinni hálfleiks. 8-22

15:35 Hálfleikur. Rúmenía er að rúlla yfir Ísland. 8-21.

Markaskorarar Íslands í fyrri hálfleik: Dagný Skúladóttir 2, Hanna Stefánsdóttir 3 (1 víti), Rakel Dögg Bragadóttir 1, Sólveig Lára Kjærnested 1, Sunna María Einarsdóttir 1, Hildigunnur Einarsdóttir 1.

Varin skot í fyrri hálfleik: Berglind Hansdóttir 5.

15:33 Hildigunnur Einarsdóttir komin á blað en Rúmenía með ellefu marka forskot. Hvar endar þetta eiginlega? Staðan 8-19.

15:29 Sunna María Einarsdóttir skorar langþráð íslenskt mark og kemst á blað. Rúmenía svarar með tveimur mörkum 7-18.

15:28 Sex í röð!

15:27 Fimm mörk í röð hjá Rúmeníu. Íslenska liðið nær lítið að athafna sig í sóknarleiknum og það rúmenska er bara að keyra yfir þetta. 6-15.

15:23 Sólveig Lára Kjærnested komin á blað en Rúmenía er með góð tök á þessu. Sex marka munur 6-12.

15:19 Dagný Skúladóttir komin með tvö mörk. Einnig Hanna Stefánsdóttir, annað þeirra úr víti. Rúmenía leiðir, staðan 5-9.

15:15 ...og þriðja markið í röð. Júlíus Jónasson tekur á það ráð að taka leikhlé. 3-7 og þrettán mínútur liðnar af leiknum.

15:13 Rúmenska liðið hefur skorað tvö mörk í röð. 3-6.

15:11 Dagný Skúladóttir skoraði annað mark Íslands eftir frábæra sendingu frá Önnu Úrsúlu. Hanna Stefánsdóttir minnkaði síðan muninn í 3-4.

15:08 Sóknarleikur íslenska liðsins gengur frekar brösuglega. Rakel Dögg Bragadóttir hefur tekið tvö víti og misnotað þau bæði. Staðan 1-4.

15:06 Rakel skoraði fyrsta mark Íslands.

15:05 Rakel Dögg Bragadóttir misnotaði vítakast hér rétt áðan. Rúmenska liðið fékk vítakast hinumegin og nýtti það. 0-2.

15:02 Berglind Hansdóttir varði fyrsta skot leiksins. Rakel Dögg Bragadóttir átti fyrsta skot íslenska liðsins en það var varið. Rúmenska liðið fór í sókn og skoraði fyrsta mark leiksins 0-1.

15:00 Leikurinn er farinn af stað hér í Laugardalshöll og stemningin á pöllunum er fín. Það er slatti af Rúmenum á pöllunum sem eru vel merktir sínu liði.

_____________________________



Markaskorarar Íslands: Dagný Skúladóttir 5, Hanna Stefánsdóttir 5 (3 víti), Sólveig Lára Kjærnested 4, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 3, Sunna María Einarsdóttir 2, Stella Sigurðardóttir 2, Rakel Dögg Bragadóttir 1, Hildigunnur Einarsdóttir 1.

Varin skot: Berglind Hansdóttir 18 (2 víti).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×