Körfubolti

Nú er bara að stela einum í Reykjavík

Brenton Birmingham.
Brenton Birmingham. Mynd/Daníel
Brenton Birmingham skoraði 28 stig fyrir Grindavík í góðum sigri liðsins á KR í kvöld og jöfnuðu Grindvíkingar því muninn í 1-1 í einvíginu.

"Við sáum það alveg í fjórða leikhlutanum í leik eitt að við gætum spilað vel," sagði Brenton í samtali við Vísi eftir leikinn.

"Við gáfum ekki allt sem við áttum í þann leik og vorum slappir, en í kvöld gáfum við allt sem við áttum og það skilaði sér. Það hefði verið erfitt að þurfa að vinna tvo leiki í Reykjavík og því var mjög mikilvægt að vinna í kvöld. Okkur tókst að verja heimavöllinn og nú er bara að stela einum í Reykjavík," sagði Brenton.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×