Lífið

Leikstjóri Transformers svarar yfirlýsingum Megan Fox

Megan Fox
Megan Fox
Michael Bay, leikstjóri Transformers kvikmyndanna hefur svarað Megan Fox sem hefur sakað hann um að hugsa meira um tæknibrellur en leikhæfileika í myndum sínum.

Það var Michael sem veitti Megan Fox hlutverk í myndunum árið 2007 og svo í framhaldsmyndinni sem var frumsýnd í síðasta mánuði. „Hún segir fullt af fáránlegum hlutum því hún er bara 23 ára og á eftir að þroskast mikið. Þú ranghvolfir augunum þegar þú heyrir slíkar yfirlýsingar og hugsar: „Allt í lagi Megan, þú getur gert hvað sem þú vilt, við náum því."

Þá segir Michael að sér finnist Megan mega sýna meira þakklæti til mannsins sem kom henni á kortið. „Enginn í heiminum vissi hver Megan Fox var fyrr en ég setti hana í Transformers."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.