Lífið

Ágúst Borgþór kennir blogg

Ágúst Borgþór hefur stundum verið nefndur Bloggþór enda verið bloggandi frá árinu 2004. Hann kennir blogg- og greinaskrif hjá Mími.
fréttablaðið/Anton
Ágúst Borgþór hefur stundum verið nefndur Bloggþór enda verið bloggandi frá árinu 2004. Hann kennir blogg- og greinaskrif hjá Mími. fréttablaðið/Anton
Hinn landskunni bloggari Ágúst Borgþór, Bloggþór, miðlar nú af reynslu sinni á námskeiði í bloggi.

„Ég hef unnið lengi við auglýsingatextagerð og var beðinn um það fyrir nokkru að kenna fræðin á bak við slík skrif. Ég komst fljótlega í raun um það að ég er mun betri í að kenna heldur en að skrifa sjálfur,“ segir Ágúst Borgþór Sverrisson, einn þekktasti bloggari landsins. Ágúst klæðist brátt aftur í kennarafötin því hann hyggst kenna áhugasömum að blogga á sérstöku greina- og bloggnámskeiði sem Mímir stendur fyrir. Í námskeiðslýsingu stendur að markmiðið sé að geta skrifað frambærilegar blaðagreinar og að geta skrifað blogg sem fjölmiðlar vitna í. Auk þessa heldur Ágúst á sama tíma námskeið í smásagnagerð.

Ágúst hefur verið bloggandi síðan 2004 og það næddi töluvert um síðu hans á fyrstu árunum. „Jú, þetta var frekar harður heimur fyrir mig í fyrstu, mér bárust óhefluð skilaboð, ég fékk marga upp á móti mér og maður var sjálfur full hvatvís,“ útskýrir Ágúst. Hann segist þó hafa setið á friðarstóli að undanförnu. „Allavega eru athugasemdirnar mun málefnalegri en áður.“

Þegar bloggarinn Ágúst byrjaði á sínum tíma var bloggið afmarkað af sérstökum hópi. Undanfarin tvö ár hefur hins vegar orðið sprenging í blogginu, ekki síst fyrir tilstuðlan bloggsíðna mbl.is og Vísir.is og nú síðast Eyjunnar.

„Manni finnst nú oft eins og fólk sem er að blogga mætti aðeins velta skrifunum betur fyrir sér; stundum er nefnilega betra að blogga bara einu sinni í viku og hafa eitthvað að segja í stað þess að blogga og hafa ekkert fram að færa,“ segir Ágúst sem hyggst leggja á það ríka áherslu á námskeiðinu að hugsunin sé skýr og fókusinn verði á aðalatriðin.

freyrgigja@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.