Bíó og sjónvarp

Al Pacino til liðs við Shakespeare

Lér Al Pacino leikur Lé konung í mynd Michaels Radford. Pacino finnst hann nú vera orðinn nógu gamall til að taka að sér hlutverkið.
Lér Al Pacino leikur Lé konung í mynd Michaels Radford. Pacino finnst hann nú vera orðinn nógu gamall til að taka að sér hlutverkið.
Al Pacino hyggst bregða sér í líki Lés konungs, eins af þekktustu persónum Williams Shakespeare. Í þessu sígilda leikriti er sagt frá konungi sem þarf að skipta upp ríkidæmi sínu á milli þriggja dætra sinna.

Lér ákveður að hafa þann háttinn á að sú sem elskar hann mest fær allt.

Tvær af dætrum Lés flaðra upp um hann og dekra við hann með öllum hætti en sú þriðja neitar að taka þátt í leiknum. Hún er síðan gerð arflaus, Kóngurinn dagar hins vegar uppi óhamingjusamur og vansæll.

Pacino hefur áður daðrað við Shakespeare, lék meðal annars í kvikmyndunum Kaupmaður í Feneyjum og Looking for Richard.

Stórleikaranum hefur áður verið boðið hlutverkið en sjálfum hefur Pacino ekki fundist hann nógu gamall í það. Pacino veitir ekkert af að hressa aðeins upp á ferilinn hjá sér enda hefur hann ekki verið merkilegur að undanförnu. Kvikmyndir hans hafa flest allar verið skotnar niður og þessi mikli gæðaleikari þarf heldur betur vind í seglinn.

Leikstjórinn Michael Radford hefur verið ráðinn til að leikstýra en hann er þekktastur fyrir konfektmolana sína Il Postino og áðurnefndan Kaupmann í Feneyjum. Samkvæmt bíósíðu Empire verður myndin búningadrama af bestu gerð, hún verði svipuð og Kaupmaðurinn í útliti. Þetta þýðir því að hún muni ekki gerast á þeim tíma sem Lér konungur ríkti en það var fyrir tíma Rómverja í Bretlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×