Arnór með sex í sigri FCK Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. nóvember 2009 11:00 Arnór Atlason í leik með íslenska landsliðinu. Nordic Photos / AFP
Fjölmargir Íslendingar voru í eldlínunni með sínum liðum í norska, sænska og danska handboltanum í gær. Arna Sif Pálsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir Horsens sem tapaði, 30-20, fyrir FCK í dönsku úrvalsdeildinni í gær. Þá var Rut Jónsdóttir með tvö mörk fyrir Team Tvis Holstebro er liðið tapaði fyrir Midtjylland, 35-24, á heimavelli. FCK er taplaust á toppi deildarinnar með átján stig eftir níu umferðir og Midtjylland í öðru sæti með fjórtán stig. Team Tvis er í níunda sæti deildarinnar með sex stig og Horsens í því ellefta og næstneðsta með tvö stig. Þá var einnig leikið í karladeildinni í Danmörku. Arnór Atlason fór mikinn í sigri FCK á Viborg og skoraði sex mörk í 35-29 sigri liðsins. FCK er í fjórða sæti deildarinnar með fjórtán stig. Gunnar Steinn Jónsson skoraði þrjú mörk fyrir Drott sem vann nauman sigur á Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í gær, 29-28. Einar Guðmundsson komst ekki á blað hjá Kristianstad. Drott er í fimmta sæti deildarinnar með átta stig eftir sex leiki. Kristianstad er í þrettánda og næstneðsta sæti deildarinnar með þrjú stig. Einnig var spilað í Noregi í gær. Haugaland, lið Ólafs Hauks Gíslasonar markvarðar, tapaði fyrir Runar á útivelli, 31-24. Meistararnir í Fyllingen töpuðu stórt fyrir Bækkelaget á útivelli, 34-25. Andri Stefan skoraði þrjú mörk fyrir Fyllingen í leiknum. Þá vann Elverum sex marka sigur á Bodö, 33-27. Sigurður Ari Stefánsson komst ekki á blað í leiknum en hann leikur með Elverum. Elverum er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar eftir fimm umferðir. Fyllingen er í sjöunda sæti með fjögur stig og Haugaland í níunda með þrjú stig. Í úrvalsdeild kvenna tapaði Levanger fyrir Storhamar á heimavelli, 34-25. Ágúst Jóhannsson er þjálfari liðsins. Rakel Dögg Bragadóttir er nýgenginn til liðs við Levanger en er enn að jafna sig eftir meiðsli.
Handbolti Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira