Ísland í efri styrkleikaflokknum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. júní 2009 22:42 Íslendingar fagna sigrinum á Makedóníu í vikunni. Mynd/Daníel
Ísland verður í efri styrkleikaflokknum þegar dregið verður í riðla í úrslitakeppni EM í Austurríki sem fer fram í janúar á nsæta ári. Liðunum sextán sem tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni verður skipt í tvo flokka. Ísland er í hópi með sterkari liðunum. Það er þó ekki hægt að segja að Ísland er í efsta styrkleikaflokki. Búið er að raða þeim fjórum hæst skrifuðu liðunum í riðla svo þau geti ekki dregist gegn hvort öðru. Ísland mun því mæta einu þeirra í riðlakepppninni og svo tveimur úr neðri styrkleikaflokknum. Í dag tryggðu tvö síðustu liðin sig inn á EM en það voru Slóvenía og Ungverjaland. Ísland gerði í dag 25-25 jafntefli við Eistland í sínum lokaleik í undankeppninni. Þar sem Noregur tapaði fyrir Makedóníu á sama tíma dugði stigið Íslandi efsta sæti riðilsins og þar með sæti í efri styrkleikaflokknum. Noregur er í þeim neðri. Þó eru langflest liðin í neðri styrkleikaflokknum afar sterk enda yfirleitt talið að EM sé sterkara mót en HM í handbolta. Dregið verður í riðlana í Vínarborg á miðvikudaginn næstkomandi. Efri styrkleikaflokkur: Danmörk (A-riðill) Króatía (B-riðill) Þýskaland (C-riðill) Frakkland (D-riðill) Svíþjóð Rússland Ísland Spánn Neðri styrkleikaflokkur: Austurríki (A-riðill) Pólland Serbía Noregur Ungverjaland Slóvenía Tékkland Úkraína A-riðill verður leikinn í Linz, B-riðill í Graz, C-riðill í Wiener Neustadt og D-riðill í Innsbrück. Milliriðlakeppnin fer annars vegar fram í Innsbrück og Vínarborg en úrslitin fara eingöngu fram í höfuðborginni Vín.
Handbolti Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira