Viðskipti innlent

Færeyjabanki einn á uppleið í Kauphöllinni

Færeyjar.
Færeyjar.

Gengi hlutabréfa í Færeyjabanka hefur hækkað um 0,98 prósent í Kauphöllinni og er það jafnframt eina félagið sem hefur hækkað frá því viðskipti hófust í dag.

Á sama tíma hefur gengi bréfa í Marel Food Systems fallið um 2,53 prósent, í Össuri fallið um 2,39 prósent og Bakkavör um 0,63 prósent.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur lækkað um 0,33 prósent og stendur í 222 stigum. Nýja vísitalan stendur óbreytt frá í gær í 581 stigi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×