Handbolti

Vita hvað þarf til að landa titlum

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Atli Hilmarsson, þjálfari Stjörnunnar.
Atli Hilmarsson, þjálfari Stjörnunnar. Mynd/Anton
Atli Hilmarsson þjálfari Stjörnunnar var að vonum ánægður eftir frábæran sigur á Fram, 38-31, í fyrsta leik liðanna í úrslitum úrslitakeppni N1 deildar kvenna.

„Frábær sóknarleikur! Það hefur verið hikst á honum í vetur en við skoruðum flott mörk í dag og það var gaman að sjá hvernig liðið blómstraði. Við fengum mörg mörk á okkur en við vorum einbeittar í kvöld. Þetta lið er tilbúið til að vinna titla og veit hvað þarf til að vinna titla. Þær voru tilbúnar í þetta fyrsta skref," sagði Atli eftir leik.

„Ég er mjög ánægður með hugarfarið. Það var hættulegt að fara með sex mörk inn hálfleik og við vissum af því að þær unnu upp svipað forskot í einvíginu gegn Haukum. Við vorum klárar á því að fyrstu 10 mínúturnar gætu ráðið úrslitum og þá fórum við sjö mörk yfir. Það gerði útslagið."

Stjarnan lék án markvarðar síns, Florentinu Stanciu, sem tók út leikbann og var Atli mjög ánægður hvernig stelpurnar tóku við hennar hlutverki í leiknum.

„Það er ekki bara að Florentina sé frábær markvörður. Hún er mikil peppari, frábær liðsmaður og fær áhorfendur í lið með sér. Það var mjög mikilvægt að allar hinar í liðinu myndu taka við hlutverki hennar, ekki bara Sólveig í markinu. Það verður gaman að fá hana aftur inn á föstudaginn og nú veit ég að ég get treyst Sólveigu betur en ég hef kannski gert," sagði Atli með bros á vör.

Aðeins fjórir leikmenn Stjörnunnar áttu skot á markið í fyrri hálfleik en Atli segist ekki óttast að lítil breidd komi niður á liðinu er líður á úrslitaeinvígið.

„Ég hef verið harðlega gagnrýndur fyrir að skipta lítið en þær eru í fínu standi og engin meidd. Þær hafa líka gaman að þessu en ég geri mér grein fyrir því að ég þarf að skipta meira en eins og staðan er núna þá spilast þetta vel fyrir okkur en auðvitað er þetta brothætt," sagði Atli að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×