Lífið

Sjö hjákonur Tigers

Sjö konur hafa stigið fram og viðurkennt að hafa átt í sambandi við kylfinginn Tiger Woods. Sú fyrsta sem var orðuð við Woods var skemmtanastjórinn Rachel Uchitel sem býr og starfar í New York. Næst kom Jaimee Gubbs, 24 ára gömul barþerna sem hefur einnig komið fram í raunveruleikaþættinum Tool Academi.

Þriðja konan orðuð við Woods var hin 27 ára gamla Kalika Moquin, rekstrarstjóri skemmtistaðar í Las Vegas. Jamie Jungers, 26 ára gömul barþerna í Las Vegas, hefur einnig viðurkennt að hafa átt í 18 mánaða löngu sambandi við Woods.

Hin 33 ára gamla Mindy Lawton, sem starfar sem gengilbeina í Orlando, sagði í viðtali við götutímaritið News of The World að hún hefði átt í ástarsambandi við kylfinginn nafntogaða. Sjötta konan sem hefur verið orðuð við Woods er Cori Rist, einstæð móðir frá Manhattan sem starfaði sem dansari á vinsælum skemmtistað í New York. Woods og Rist kynntust á öldurhúsi þar í borg og áttu í sex mánaða löngu sambandi. Síðust til að koma fram og viðurkenna samband sitt við kylfinginn er klámmyndastjarnan Holly Sampson.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.