Íslenski boltinn

Steinþór í Stjörnuna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Steinþór Freyr Þorsteinsson í leik með Breiðabliki í sumar.
Steinþór Freyr Þorsteinsson í leik með Breiðabliki í sumar. Mynd/Anton
Steinþór Freyr Þorsteinsson hefur samið við Stjörnuna og mun leika með liðinu næstu tvö árin.

Steinþór er uppalinn Bliki en fékk ekki að spila jafn mikið og hann vildi með liðinu síðastliðið sumar, eftir því sem hann sagði í samtali við fótbolta.net í dag.

Steinþór var samningslaus og því frjálst að ganga til liðs við hvaða lið sem er.

„Það er alltaf erfitt að fara frá liðinu sínu en þetta gekk ekki þar. Maður veit síðan ekki með framtíðina," sagði Steinþór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×